Í tilefni nýrrar vefsíðu Instaprent bjóðum við 20% afslátt af öllum vörum til og með föstudeginum 27. nóvember. Afslátturinn dregst frá í körfunni.

Beint í efni

Um okkur

Instaprent.is er netverslun sem býður upp á mikið úrval af sérsniðnum vörum. Áhersla okkar er að búa til vandaðar og fallegar vörur sem hægt er að njóta hvar sem er.

Instaprent.is framleiðir ýmsar vörur með mynd frá þér. Allt frá tilbúinni vöru til sérsniðinna vara með þinni mynd og þínum texta.

Við hjá Instaprent erum staðsett í Mosfellsbæ þar sem þú getur sótt vörurnar þínar. Þú getur heimsótt verslun okkar og verkstæði í Bjarkarholti 2, Háholt 14 húsinu á opnunartíma.

Afhending

Um leið og gengið er frá pöntun og hún greidd fer ferlið í gang. Það tekur venjulega 3–5 virka daga að fá vöruna senda en það fer þó allt eftir hversu mikið er að gera hverju sinni. Mælum við með að þegar um gjafir sé að ræða að panta tímanlega.

Skilmálar

Verð í netversluninni er með VSK og reikningar eru gefnir út með VSK. Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Um skilmála þessa gilda ákvæði laga um húsgöngu- og fjarsölu nr. 96/1992 og laga um neytendakaup nr. 48/2003. Skilmálarnir í heild.